Kirkjan í Viðvík stendur við norðvesturhorn kirkjugarðsins, þar sem sáluhliðið skásker hornið. Kirkjugarðurinn er girtur trégrindum, sem skorðaðar eru í raufar á steyptum stöplum. Undir grindur er lagt grjót til varnar búfé. Girðingin er frá því um 1965, en þá var garðurinn stækkaður um 6 metra til vesturs og 3 á aðrar hliðar. Um eins meters hæðarmunur er á eldra garðinum og stækkuninni. Garðveggurinn var áður hlaðinn úr náttúrulegu grjóti. Á sama tíma hefur umbúnaður, sem settur var á sáluhlið 1912, vikið fyrir mjóum járnboga með fínlegum krossi. Allt er hvítmálað.
Vestast í kirkjugarðinum standa tvö tvístofna reyniviðartré og lerkitré sem frú Anna Sigurðardóttir, kona séra Guðbrands Björnssonar, gróðursetti snemma á búskapartíma sínum í blómagarðinum sem þá var milli kirkjugarðs og bæjar, en er nú innlimaður í kirkjugarðinn. Í norðausturhorni gamla garðsins eru tvö blágrenitré í járngrindargirtu leiði. Vestan þeirra stóð torfkirkjan sem vék fyrir þeirri sem nú stendur. Nokkur önnur tré eru á leiðum í garðinum. Bílastæði kirkjunnar er þar sem gamli bærinn stóð áður og síðar fjárhús og hlaða. Trausti Bergland á Ljótsstöðum skreytti með krossum hliðgrind og hliðstaura bílastæðisins sem er afgirt með netvír. Sunnan við kirkjugarðinn heitir Kirkjulaut. Þar hafa kirkjugestir fyrrum áð og dregið af sér ferðafötin áður en þeir gengu til kirkju.
Heimildir:
Kirkjur Íslands 6. bindi, s. 257
105 |
91 |
Guðríður Magnúsdóttir
Hluti af Hólaprestakalli (1830-1862, 1951-)
Hluti af Viðvíkurprestakalli (1862–1951).
- Hólar - Prestþjónustubók 1816-1841
Prestsþjónustubók 1816-1841. - Hólar - Prestþjónustubók 1817-1838
Prestsþjónustubók Viðvíkur 1817-1838. Manntal 1816. - Hólar - Prestþjónustubók 1830-1861
Prestsþjónustubók Viðvíkur 1830-1861. - Hólar - Prestþjónustubók 1838-1875
Prestsþjónustubók 1838-1875. - Hólar - Prestþjónustubók 1876-1917
Prestsþjónustubók 1876-1917. - Hólar - Prestþjónustubók 1918-1945
Prestsþjónustubók 1918-1945.
Hluti af Hólaprestakalli (1830-1862, 1951-)
Hluti af Viðvíkurprestakalli (1862–1951).
- Hólar - Sóknarmannatal 1830-1835
Sóknarmannatal 1830-1835. - Hólar - Sóknarmannatal 1836-1864
Sóknarmannatal 1836-1864. - Hólar - Sóknarmannatal 1866-1879
Sóknarmannatal 1866-1877 og 1879. - Hólar - Sóknarmannatal 1880-1888
Sóknarmannatal 1880 og 1882-1888. - Hólar - Sóknarmannatal 1888-1905
Sóknarmannatal 1888-1905. - Hólar - Sóknarmannatal 1905-1914
Sóknarmannatal 1905-1914. - Hólar - Sóknarmannatal 1915-1917
Sóknarmannatal 1915-1917. - Hólar - Sóknarmannatal 1917-1935
Sóknarmannatal 1917-1935. - Hólar - Sóknarmannatal 1936-1954
Sóknarmannatal 1936-1954.