Ólafur Einarsson Hjaltested
1801 - 1848 (47 ára)-
Fornafn Ólafur Einarsson Hjaltested [1, 2, 3] Fæðing 3 nóv. 1801 Akureyri, Íslandi [1, 3] Menntun 1825 Bessastöðum, Bessastaðahr., Gullbringusýslu, Íslandi [3, 4] Stúdent með góðum vitnisburði. Atvinna 1825-1831 Bessastöðum, Bessastaðahr., Gullbringusýslu, Íslandi [3] Kennari. Atvinna 1831-1840 Reykjavík, Íslandi [3] Forstöðumaður barnaskóla. Atvinna 9 mar. 1837 - 1848 Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfjarðarstrandarhr., Borgarfjarðarsýslu, Íslandi [3, 4] Fékk Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 9. mars 1837 en hélt þó skólastarfi sínu áfram í þrjú ár og hafði aðstoðarprest í Saurbæ. Fluttist í Saurbæ vorið 1840 og hélt til æviloka. Andlát 29 nóv. 1848 Saurbæ, Hvalfjarðarstrandarhr., Borgarfjarðarsýslu, Íslandi [1, 2] Saurbær - Prestþjónustubók 1844-1888, s. 220-221 Greftrun 6 des. 1848 Saurbæjarkirkjugarði, Hvalfjarðarstrandarhr., Borgarfjarðarsýslu, Íslandi [2] Ólafur Einarsson Hjaltested Nr. einstaklings I8207 Legstaðaleit Síðast Breytt 28 ágú. 2020
-
Athugasemdir - Prestur. Kennari barna Þorgríms Tómassonar, föður Gríms Thomsens á Bessastöðum á árunum 1825-1831. Á þessum árum var verið að koma upp barnaskóla í Reykjavík og var hann fenginn til að standa fyrir honum 1831. Fékk Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 9. mars 1837 en hélt þó skólastarfi sínu áfram í þrjú ár og hafði aðstoðarprest í Saurbæ. Fluttist í Saurbæ vorið 1840 og hélt til æviloka. Jafnan heilsutæpur. Hann fékk almennt lof fyrir kennarahæfileika, liprar gáfur og mannkosti. [5]
- Var heilsutæpur en þótti afbragðs kennari og mikið ljúfmenni. Kirkjubækur hans voru færðar af mikilli snilld. Hann hafði ekki bú í Saurbæ an var þar hjá Georg Pétri, bróður sínum.
Auðmaður, gaf Strandahr. tvær jarðir, Útskálahamar í Kjós og Jörfa á Kjalarnesi, auk 800 ríkisdala í peningum, skyldi verja vöxtunum til jarðabóta í Strandarhr.
Ókvæntur og barnlaus. [3]
-
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.