Anna Sigríður Sigurðardóttir
1855 - 1922 (66 ára)-
Fornafn Anna Sigríður Sigurðardóttir [1] Fæðing 26 júl. 1855 Geirhildargörðum, Öxnadalshr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [1, 2] Manntal 1860 Geirhildargörðum, Öxnadalshr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [3] Manntal 1880 Heiðarhúsum, Glæsibæjarhr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [4] Manntal 1890 Þverá í Öxnadal, Öxnadalshr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [5] Manntal 1901 Myrká, Skriðuhr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [6] Manntal 1910 Garðshorni Þelamörk, Glæsibæjarhr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [7] Manntal 1920 Bryta, Glæsibæjarhr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [8] Andlát 19 jún. 1922 Neðri-Rauðalæk, Glæsibæjarhr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [2, 9] Greftrun 30 jún. 1922 Bægisárkirkjugarði, Glæsibæjarhr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [9] Legsteinar Mynd af legstein vantar, sendu mér mynd með því að smella hér Nr. einstaklings I4261 Legstaðaleit Síðast Breytt 12 apr. 2017
Fjölskylda 1 Jóhann Árni Helgason
f. 4 júl. 1851
d. 10 jún. 1930 (Aldur 78 ára)Hjónaband Aths.: Þau skildu. Heimili 1872-1873 Gloppu í Öxnadal, Öxnadalshr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi [2] Nr. fjölskyldu F1338 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 12 apr. 2017
Fjölskylda 2 Jónas Jónsson
f. 1842, Geirhildargörðum, Öxnadalshr., Eyjafjarðarsýslu, Íslandi
d. 6 ágú. 1908 (Aldur 66 ára)Hjónaband Aths.: Þau giftust ekki. Nr. fjölskyldu F1339 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 12 apr. 2017
-
Athugasemdir - Foreldrar Önnu voru Sigurður Kristjánsson f. 1821, d. 1858, og Sigríður Pálsdóttir f. 14. 8. 1813, d. 18. 8. 1898. Þau bjuggu í Geirhildargörðum 1850 til dauðadags Sigurðar en Sigríður bjó þar áfram með börnum sínum. Jón sonur hennar tók við búi þar og bjó síðar í Ásgerðarstaðaseli með móður sína hjá sér.
Anna Sigríður giftist Jóhanni Árna Helgasyni. Þau bjuggu í Gloppu í Öxnadal 1872-1873, voru síðan á Vöglum og í Heiðarhúsum á Þelamörk 1880. Þau eignuðust 2 börn sem urðu skammlíf. Þau voru skilin fyrir 1890 en það ár var hún vinnukona á Þverá og síðan á ýmsum bæjum í sveitinni.
Árið 1901 var hún á Myrká og þar var einnig vinnumaður Jónas Jónsson. Þau bjuggu saman upp úr þessu og 1908 fluttu þau í Syðri-Bægisá þar sem Jónas lést. Á árunum 1909 til 1915 var hún húskona í Garðshorni á Þelamörk, þaðan fór hún í Heiðarhús eitt ár, síðan í Steinsstaði og Bryta en síðast í Neðri-Rauðalæk þar sem hún lést.
"Anna var stór kona og þrekgóð enda kölluð Anna stóra. Hún vann jafnt karlmannsverk sem kvenna og vildi jafnvel heldur sinna karlmannsverkum. Hún gekk að slætti og vildi heldur standa við orfið en taka hrífuna og raka. Hún var greiðug og gjafmild þó að af miklu væri ekki að taka. Hún var vel vitiborin og gat gert vísu ef svo stóð á". (Steindór Pálmason frá Garðshorni) [2]
- Foreldrar Önnu voru Sigurður Kristjánsson f. 1821, d. 1858, og Sigríður Pálsdóttir f. 14. 8. 1813, d. 18. 8. 1898. Þau bjuggu í Geirhildargörðum 1850 til dauðadags Sigurðar en Sigríður bjó þar áfram með börnum sínum. Jón sonur hennar tók við búi þar og bjó síðar í Ásgerðarstaðaseli með móður sína hjá sér.
-
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.