Á Knappsstöðum er kirkjustaður frá ómunatíð. Í þætti af Þórhalli Knapp, sem var maður göfugrar ættar, siðlátur og þó heiðinn, segir frá því að hann tók kristna trú og lét reisa kirkju á bæ sínum. Ekki er vitað hvaða ár það var.
Þann 12. júní 1838 stórskemmdist Knappsstaðakirkja í jarðskjálfta. Ákveðið var að reisa nýja kirkju. Var hún vígð 1840 og er mun því vera elsta timburkirkjan á Íslandi.
Í örnefnaskrá Páls Sigurðssonar fyrir Knappsstaði, frá 1978, kemur fram að Knappsstaðakirkja standi á Kirkjuvelli í miðjum kirkjugarði. Kirkjur voru oft á bæjarhlaði eða fast við bæi og ekki óþekkt að þær hafi færst eitthvað til í aldanna rás. Vegna langrar kirkjusögu á Knappsstöðum má því gera ráð fyrir leifum fjölda kirkjubygginga í nágrenni núverandi kirkju og jafnvel á bæjarstæðinu. Engar sýnilegar minjar um eldri kirkjur eru þó á vettvangi og verður ekki fullyrt um það án rannsóknar. Þá er sömuleiðis hugsanlegt að kirkjugarðurinn hafi færst eitthvað til í tímans rás og ekki útilokað að grafir geti verið að finna utan marka núverandi kirkjugarðs.
Heimildir:
Fornleifaskráning vegna lagningar hitaveitu í Fljótum í Skagafirði
Lesbók Morgunblaðsins 24.12.1977, s. 22
0 |
0 |
Ekki enn myndaður.
Hluti af Barðsprestakalli (1881–1966).
- Barð - Prestþjónustubók 1868-1910
Prestsþjónustubók 1868-1910. - Barð - Prestþjónustubók 1910-1947
Prestsþjónustubók 1910-1947.
- Barð - Sóknarmannatal 1784-1831
Sóknarmannatal 1784-1814 og 1820-1831. (Vantar aftan af. Á tímabilinu 1820-1831 er oft ekki um reglulegt sóknarmannatal að ræða heldur fólksfjölda). - Barð - Sóknarmannatal 1797-1819
Sóknarmannatal Barðs 1797-1799, 1801-1806 og 1808-1819. - Barð - Sóknarmannatal 1832-1838
Sóknarmannatal 1832 og 1834-1838. - Barð - Sóknarmannatal 1839-1846
Sóknarmannatal 1839-1843, 1845 og 1846. - Barð - Sóknarmannatal 1847-1853
Sóknarmannatal 1847-1853. - Barð - Sóknarmannatal 1854-1860
Sóknarmannatal 1854-1860. - Barð - Sóknarmannatal 1861-1874
Sóknarmannatal 1861-1867 og 1968-1974. Bundið inn í eina bók. - Barð - Sóknarmannatal 1875-1880
Sóknarmannatal 1875-1880. - Barð - Sóknarmannatal 1881-1890
Sóknarmannatal 1881-1890. - Barð - Sóknarmannatal 1891-1908
Sóknarmannatal 1891-1908. - Barð - Sóknarmannatal 1910-1920
Sóknarmannatal 1910-1920. - Barð - Sóknarmannatal 1921-1931
Sóknarmannatal 1921-1931. - Barð - Sóknarmannatal 1932-1943
Sóknarmannatal 1932-1943. - Barð - Sóknarmannatal 1944-1952
Sóknarmannatal 1944-1952.