Sigurbjörn Bjarnason
1865 - 1889 (23 ára)Reykjavíkin
Skipið Reykjavíkin kom til Reykjavíkur 25. mars 1873. Var þetta nýsmíðað danskt skip, tvísiglt með skonnortulagi og var stærð þess mæld 27,38 lestir. Svo er skýrt frá í blöðum sem töluðu um þessa skipakomu, að Reykjavíkin hafi ,,kostað 2900 ríkisdali, en ýmislegt vantaði til seglbúnaðar og annarra áhalda og útgerðar, er kaupa varð að auki." Var það Geir Zoëga kaupmaður sem stóð fyrir þessum kaupum, ásamt Kristni Péturssyni í Engey og Jóni Þórðarsyni í Hlíðarhúsum.
Reykjavíkin var bæði á fiskveiðum sem og hákarlaveiðum í gegnum árin. En í lok mars 1889, er hún var á hákarlaveiðum fyrir sunnan land, lenti hún í hinu mesta illviðri og er talið að hún hafi farist með manni og mús 31. mars 1889.
Eigandi frumrits | Málverk Benedikts Gröndal, 1876 |
Skráarnafn | Reykjavíkin.jpg |
Skráarstærð | 82.5k |
Stærð | 900 x 620 |
Tengist | Sigurbjörn Bjarnason (Atvinna); Steindór Bjarnason (Atvinna); Theódór Kristinn Guðmundsson (Atvinna); Magnús Hjartarson (Atvinna); Jón Jónsson (Atvinna); Jón Halldór Jörgensson (Atvinna); Magnús Oddsson (Atvinna); Einar Pálsson (Atvinna); Guðmundur Sigfússon (Atvinna); Einar Sigurðsson (Atvinna) |
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.