Legsteinar
» Sýna allr «Fyrri «1 ... 8971 8972 8973 8974 8975 8976 8977 8978 8979 ... 11752» Næsta» » Hefja myndasýningu
Séra Torfi Jónsson
Steinninn er 181 cm á lengd, 109 cm á breidd og um 16 cm á þykkt. Hann er erlendur að efni, líklega úr dönskum sand- eða leirsteini. Í hornum eru meitluð merki guðspjallamannanna á hringlaga fleti.
Efst til vinstri er engill, merki Mattheusar, en efsti til hægri er ljón tákn Markúsar. Neðst til vinstri er naut Lúkasar en til hægri er örn, merki Jóhannesar. Engin áletrun er á steininum. Líklega hefur átt að meitla letrið hérlendis en af einhverjum ástæðum hefur það farist fyrir.
Í steininum eru sérkennilegar holur eftir rakningsgrind en steinninn var fyrr í kórgólfi og uppistaðan í vefstað rakin í kirkjunni og grópaði þá gaddurinn í rakningsgrindinni holurnar. Steinninn var síðar lengi dyrahella á kirkjutröppunum en var fyrir nokkrum árum fluttur á núverandi stað að fyrirlagi þjóðminjavarðar.
Heimild: Kirkjur Íslands 4. bindi, s. 75
Staða: Staðsettur
Eigandi frumrits | Kirkjur Íslands 4. bindi, s. 75 |
Dags | . |
Skráarnafn | kirkjurisland4btorfijonsson.jpg |
Skráarstærð | 24.18k |
Stærð | 243 x 395 |
Tengist | Séra Torfi Jónsson (Jarðsetning) |
Gaulverjabæjarkirkjugarður, Gaulverjabæjarhr., Árnessýsla, Íslandi
» Sýna allr «Fyrri «1 ... 8971 8972 8973 8974 8975 8976 8977 8978 8979 ... 11752» Næsta» » Hefja myndasýningu
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.