Björn Maron Jónsson
1949 - 1970 (20 ára)-
Fornafn Björn Maron Jónsson [1, 2, 3] Fæðing 16 ágú. 1949 Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi [2] Otradalsprestakall; Prestsþjónustubók Bíldudalssóknar og Selárdalssóknar 1930-1949, s. 43-44 Skírn 25 des. 1949 Bíldudal, Íslandi [2] Menntun 1969 Stýrimannaskólanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi [3] Lauk fiskimannaprófi þá um vorið. Heimili 1970 Stórholti 12, Reykjavík, Íslandi [4] Atvinna 1970 [1] Stýrimaður á vb. Sæfara BA 143. Sæfari BA 143
Sæfari BA 143 frá Tálknafirði var 100 lestir og með 400 ha MWM dísel, vél byggður í Austur-Þýskalandi árið 1960. Báturinn var í eigu Hraðfrystihúss Tálknafjarðar.
Sæfari fór á sjó á föstudagsmorgni 9. janúar 1970. Síðast heyrðist til bátsins kl. 2:30 aðfaranótt sunnudags. Síðast heyrðist til bátsins kl. 2:30 aðfaranótt sunnudags 11. mars en þá ræddi skipstjórinn á Tálknfirðingi við skipstjórann á Sæfara, Hreiðar Árnason. Kl. 10:30 á laugardag tóku starfsmenn Tilkynningaskyldunnar eftir því að Sæfari hafði ekki haft samband við þá. Báðu þeir þá án tafar radíóin á Patreksfirði og Ísafirði að kalla bátinn upp, en það bar engan árangur. Strax upp úr því voru bátar beðnir um að svipast eftir Sæfara og síðdegis á laugardeginum hófu 20 skip leit að bátnum, þar á meðal varðskip, íslenskir og breskir togarar og Orsini, ásamt bátum af Vestfjarðahöfnum.
Næstu daga var víðtækri leit haldi áfram, en reyndist hún árangurslaus og var báturinn talinn af fimmtudaginn 15. janúar 1970.
Skoða umfjöllun. Andlát 10 jan. 1970 [1] Ástæða: Fórst með vb. Sæfara BA 143. Greftrun Í votri gröf - Lost at sea [1] Systkini 1 bróðir Legsteinar Mynd af legstein vantar, sendu mér mynd með því að smella hér Nr. einstaklings I9562 Legstaðaleit Síðast Breytt 22 jún. 2024
Faðir Jón Guðmundur Jónsson
f. 24 ágú. 1900, Kirkjubóli, Auðkúluhr., V-Ísafjarðarsýslu, Íslandi
d. 3 ágú. 1977, Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi (Aldur 76 ára)Móðir Guðmunda Ingveldur Sigurðardóttir
f. 21 jún. 1912, Kirkjubóli í Fífustaðadal, Ketildalahr., V-Barðastrandarsýslu, Íslandi
d. 25 nóv. 1992, Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi (Aldur 80 ára)Hjónaband 7 des. 1944 [5] Nr. fjölskyldu F2721 Hóp Skrá | Family Chart
-
Athugasemdir - Björn fluttist til Reykjavíkur með foreldrum sínum árið 1967. Þar gekk hann í Stýrimannaskólann og lauk fiskimannaprófi frá honum vorið 1969. Samhliða stundaði hann nám í flugskóla Helga Jónssonar og lauk þar námi sem einkaflugmaður sama vor og hugði á frekara flugnám síðar. Hann réðst því sem stýrimaður á vélbátinn Sæfara frá Tálknafirði um áramótin 1970 til að afla sér fjár. Hann var einkabarn foreldra sinna. [3]
-
Andlitsmyndir Björn Maron Jónsson -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.