Pétur Pétursson
1965 - 2016 (51 ára)-
Fornafn Pétur Pétursson [1, 2] Fæðing 5 jún. 1965 Akureyri, Íslandi [1, 2] Andlát 21 sep. 2016 [1] Greftrun 7 nóv. 2016 Keflavíkurkirkjugarði við Aðalgötu, Keflavík, Íslandi [1] Pétur Pétursson
Plot: D11-1-7Nr. einstaklings I7701 Legstaðaleit Síðast Breytt 26 mar. 2021
-
Athugasemdir - Pétur ólst upp á Akureyri en flutti síðan suður til Reykjavíkur til náms. Hann hafði víðtæka menntun og starfsreynslu. Hann lauk einkaflugnámi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, stýrimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík auk þess sem hann útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Hótel- og veitingaskólanum. Árið 2010 lauk hann síðan BS-prófi í osteópatíu, 45 ára að aldri, frá Skandinavíska Osteopata-háskólanum í Svíþjóð.
Ungur að árum, eða 11 ára, fór hann til sjós með Pétri, föður sínum, á Hafdísi EA 8, og síðar með bræðrum sínum, Kristjáni og Guðmundi. Rúmlega tvítugur gerðist hann háseti á Hofsjökli og sinnti því í nokkur ár. Síðan tók við Sólbakur EA, Árbakur EA og sjómennsku sinni lauk hann síðan á Víði EA.
Pétur starfaði sem matreiðslumaður á Glóðinni í Keflavík, Hótel Sögu, við Bláa Lónið og sjálfstætt við ýmis verkefni á landsbyggðinni; fyrir erlend kvikmyndafyrirtæki, í laxveiðihúsum og einkamatreiðslumaður fyrir erlendar stórstjörnur sem sóttu landið heim. Hann skipaði sér á bekk með bestu matreiðslumönnum landsins.
Árið 2006 söðlaði hann um og hóf nám í osteópatíu í Svíþjóð. Að námi loknu hóf hann eigin rekstur á sviði verkjameðferðar í Reykjanesbæ. Íþróttafólk átti hug hans allan og sinnti hann körfuboltasamfélaginu sérstaklega.
[2]
- Pétur ólst upp á Akureyri en flutti síðan suður til Reykjavíkur til náms. Hann hafði víðtæka menntun og starfsreynslu. Hann lauk einkaflugnámi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, stýrimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík auk þess sem hann útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Hótel- og veitingaskólanum. Árið 2010 lauk hann síðan BS-prófi í osteópatíu, 45 ára að aldri, frá Skandinavíska Osteopata-háskólanum í Svíþjóð.
-
Andlitsmyndir Pétur Pétursson -
Kort yfir atburði Fæðing - 5 jún. 1965 - Akureyri, Íslandi Greftrun - 7 nóv. 2016 - Keflavíkurkirkjugarði við Aðalgötu, Keflavík, Íslandi = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.