Eiríkur Jóel Sigurðsson
1895 - 1982 (87 ára)-
Fornafn Eiríkur Jóel Sigurðsson [1, 2] Fæðing 21 mar. 1895 Keflavík, Íslandi [1, 2] Andlát 10 nóv. 1982 Aðalgötu 12, Keflavík, Íslandi [1] Greftrun Keflavíkurkirkjugarði við Aðalgötu, Keflavík, Íslandi [2, 3] Stefanía Guðmundsdóttir & Eiríkur Jóel Sigurðsson
Plot: A-64c, ?Hálfsystkini 1 hálfsystir (Foreldrar: Jón Eiríksson og Valdís Erlendsdóttir) Nr. einstaklings I554 Legstaðaleit Síðast Breytt 1 okt. 2019
Faðir Sigurður Bjarnason
f. 19 júl. 1868
d. 24 jan. 1931 (Aldur 62 ára)Móðir Valdís Erlendsdóttir
f. 25 sep. 1857, Hópi, Grindavík, Íslandi
d. 16 okt. 1920, Keflavík, Íslandi (Aldur 63 ára)Nr. fjölskyldu F145 Hóp Skrá | Family Chart
Fjölskylda Stefanía Guðmundsdóttir
f. 26 jan. 1900
d. 23 feb. 1984 (Aldur 84 ára)Hjónaband 14 sep. 1922 [2] Nr. fjölskyldu F144 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 27 des. 2018
-
Athugasemdir - Ungur að árum varð Eiríkur að vinna heimilinu, eins og tilheyrði á þeim tíma. Hann byrjaði sjómennsku á vetrarvertíðinni þegar eftir fermingu, sem þá var algengt. Hann reri þá með Jóni Ólafssyni þekktum formanni hér á þeim tíma.
Nokkur sumur fór Eiríkur austur á firði til sjóróðrar, og þá til Norðfjarðar. En til Austfjarða var á tímabili sótt sumarvinna af Suðurnesjum.
Þegar vélbátarnir komu hér til sögunnar, eignaðist Sigurður faðir hans hlut í vélbátnum Sæborginni, sem var um 9 smálesta bátur, smíðaður í Reykjavík. Fyrsta vertíð bátsins var veturinn 1913. Albert Ólafsson var einn af eigendum bátsins og var hann formaður á honum til 1920. En þá tók hann við nýjum báti, Gullfosi, sem hann átti hluti í. Þessi 7 ár var Eiríkur háseti á Sæborginni. Um þetta leyti hafði Sæborgin verið stækkuð og var nú orðin um 20 smálestir. Erlendur Jónsson, frændi Eiríks, tók þá við skipstjórn á Sæborginni, vélstjórinn sem verið hafði, fór með Albert á nýja bátinn, en Eiríkur varð nú vélstjóri á Sæborginni og gegndi því starfi þar til hún var seld til Patreksfjarðar um 1932. Eftir þetta var Eiríkur næstu fjögur árin með Erlendi, vélstjóri á m/b Gullfossi.
Eftir 1936 hætti Eiríkur störfum á sjónum. Var hann nokkur ár vélstjóri í Fiskiðjunni í Keflavik og síðan í frystihúsinu Frosta. En á árinu 1959 ræðst hann til starfa hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli og þar vann hann til 1979 að hann hætti störfum 84 ára að aldri. [2]
- Ungur að árum varð Eiríkur að vinna heimilinu, eins og tilheyrði á þeim tíma. Hann byrjaði sjómennsku á vetrarvertíðinni þegar eftir fermingu, sem þá var algengt. Hann reri þá með Jóni Ólafssyni þekktum formanni hér á þeim tíma.
-
Andlitsmyndir Eiríkur Jóel Sigurðsson
Skipamyndir Mb. Sæborgin
Sæborgin, eftir að hún var stækkuð, lengdt og borðhækkuð. Hún var þá 13 tonn. Hún var byggð 1913 af Otta Guðmundssyni, Reykjavík og var þá um 9 tonn. Hún var seld til Patreksfjarðar um 1930 og þar mun hún hafa borið beinin. -
Kort yfir atburði Fæðing - 21 mar. 1895 - Keflavík, Íslandi Andlát - 10 nóv. 1982 - Aðalgötu 12, Keflavík, Íslandi Greftrun - - Keflavíkurkirkjugarði við Aðalgötu, Keflavík, Íslandi = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.