Ragnar Eðvaldsson
1940 - 2024 (83 ára)-
Fornafn Ragnar Eðvaldsson [1] Fæðing 6 nóv. 1940 Garðsstöðum, Vestmannaeyjum, Íslandi [1] Vestmannaeyjaprestakall; Prestsþjónustubók Ofanleitissóknar 1937-1945, s. 65-66 Skírn 4 maí 1941 [1] Andlát 10 jún. 2024 [2] Greftrun 27 jún. 2024 Ekki þekkt - Ukendt - Not known [2] Legsteinar Mynd af legstein vantar, sendu mér mynd með því að smella hér Nr. einstaklings I21873 Legstaðaleit Síðast Breytt 6 sep. 2024
Faðir Eðvald Valdórsson
f. 10 ágú. 1912, Stuðlum, Reyðarfjarðarhr., S-Múlasýslu, Íslandi
d. 14 nóv. 1942 (Aldur 30 ára)Móðir Ágústa Helga "Helga"Jónsdóttir
f. 20 ágú. 1917, Garðsstöðum, Vestmannaeyjum, Íslandi
d. 29 feb. 2008 (Aldur 90 ára)Hjónaband 7 okt. 1938 [3] Nr. fjölskyldu F4235 Hóp Skrá | Family Chart
-
Athugasemdir - Ragnar fluttist með móður sinni til Keflavíkur eftir að faðir hans hafði farist með línuveiðaranum Sæborgu EA 383 haustið 1942.
Ragnar gekk í skóla í Keflavík og síðan í Menntaskólann á Laugarvatni. Þá lá leiðinn í Iðnskólann í Reykjavík, þar sem Ragnar hóf nám í bakaraiðn og lauk sveinsprófi 1963 og meistarabréf fékk hann 1966. Ragnar lærði iðnina hjá móðurbróður sínum, Sigurði Jónssyni bakarameistara, en sótti síðan frekara nám í greininni til Sviss árið 1963.
Ragnar hafði mikinn áhuga á tónlist og spilaði meðal annars með skólahljómsveit Keflavíkur, lúðrasveit Keflavíkur, lúðrasveitinni Svan í Reykjavík og hljómsveitinni Tónum. Ragnarsbakarí var vettvangur hjónanna Ragnars og Ásdísar. Ragnar var brautryðjandi og frumkvöðull á mörgum sviðum bakaraiðnar á Íslandi og segja má að allir Íslendingar hafi þekkt hina vinsælu Ragnars-botna og rúllutertubrauð. Ragnar var virkur í félagsmálum og sat meðal annars í stjórn Björgunarsveitarinnar Stakks í Keflavík og var formaður Landssambands bakarameistara. Þá var hann einn af stofnendum frímúrarareglunnar Sindra í Keflavík. [2]
- Ragnar fluttist með móður sinni til Keflavíkur eftir að faðir hans hafði farist með línuveiðaranum Sæborgu EA 383 haustið 1942.
-
Andlitsmyndir Ragnar Eðvaldsson -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.