Kristín Sigríður Þórðardóttir Kimmel
1914 - 2011 (96 ára)-
Fornafn Kristín Sigríður Þórðardóttir Kimmel [1, 2, 3] Fæðing 12 júl. 1914 Bessastöðum, Bessastaðahr., Gullbringusýslu, Íslandi [1, 2, 3] Garðaprestakall á Álftanesi; Prestsþjónustubók Bessastaðasóknar, Garðasóknar á Álftanesi og Hafnarfjarðarsóknar 1911-1927, s. 22-23 Skírn 26 des. 1914 [1] Andlát 11 maí 2011 Sólvangi hjúkrunarheimili, Hafnarfirði, Íslandi [2, 3] Greftrun 24 jún. 2011 Hafnarfjarðarkirkjugarði, Hafnarfirði, Íslandi [2] Systkini 5 bræður og 4 systur Legsteinar Mynd af legstein vantar, sendu mér mynd með því að smella hér Nr. einstaklings I21435 Legstaðaleit Síðast Breytt 13 jún. 2024
Faðir Þórður Þórðarson
f. 24 maí 1873, Arnarnesi, Garðahr., Gullbringusýslu, Ísland
d. 8 feb. 1925 (Aldur 51 ára)Móðir Sigríður Grímsdóttir
f. 24 jún. 1878, Ásakoti, Biskupstungnahr., Árnessýslu, Íslandi
d. 18 jún. 1949 (Aldur 70 ára)Hjónaband 25 okt. 1903 [4] Nr. fjölskyldu F5480 Hóp Skrá | Family Chart
-
Athugasemdir - Kristín flutti ung til Hafnarfjarðar frá Bessastöðum með foreldrum sínu og ólst þar upp.
Hún gekk í skóla í Hafnarfirði til 16 ára aldurs. Vann við það sem til féll þar til hún var 18 ára að hún réð sig til heimilisstarfa hjá Kampmanns-hjónunum í Hafnarfirði en Sören Kampmann rak Hafnarfjarðarapótek um árabil. Þar vann hún í rúm 4 ár. Kristín vann ýmis störf eftir það, m.a. á prjónastofu systur sinnar, Prjónastofu Önnu Þórðardóttur.
Árið 1944 fór Kristin til New York í vist hjá Guðrúnu og Ólafi Johnsen. Hún ílentist í Bandaríkjunum og gifti sig þar 1. desember 1945 Bruno Kimmel bakara f. 25. ágúst 1902, d. 15.desember 1959. Bruno var fæddur í þýskalandi en flutti til Bandaríkjanna skömmu fyrir seinna stríð. Eftir lát manns síns fór Kristín í nám í sjúkranuddi og vann við það fram á áttræðisaldur.
Haustið 2006 flutti Kristín heim til Íslands á ný. Hún bjó í fyrstu að Hjallabraut í Hafnarfirði eða þar til hún flutti að Dvalarheimilinu Sólvangi. [3]
- Kristín flutti ung til Hafnarfjarðar frá Bessastöðum með foreldrum sínu og ólst þar upp.
-
Andlitsmyndir Kristín Sigríður Þórðardóttir Kimmel -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.