Eiríkur Júlíus Eiríksson

Eiríkur Júlíus Eiríksson

Maður 1911 - 1987  (75 ára)

Upplýsingar um einstakling    |    Margmiðlun    |    Athugasemdir    |    Heimildir    |    Kort yfir atburði    |    Allt    |    PDF

  • Fornafn Eiríkur Júlíus Eiríksson  [1, 2
    Fæðing 22 júl. 1911  Ekru (Urðavegi 20), Vestmannaeyjum, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1
    Menntun 1932  Menntaskólanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1, 3
    Lauk stúdentsprófi með 1. einkunn, 6,54. 
    V. Bekkur A. MR 1931
    V. Bekkur A. MR 1931
    Auk þess voru m.a. í bekknum Sigurbjörn Einarsson, biskup og dr. Benjamín J. Eiríksson, hagfræðingur.
    Stúdentar frá Reykjavíkurskóla 1932
    Stúdentar frá Reykjavíkurskóla 1932
    Menntun 1934  [1
    Lauk kennaraprófi. 
    Menntun 1935  Háskóla Ísland, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1
    Tók guðfræðipróf. 
    Atvinna Eiríkur varð kennari á Núpi í Dýrafirði 1935, tók sér árshlé meðan hann kynnti sér skólamál á Norðurlöndunum 1936-1937, fór svo aftur að kenna á Núpi og varð skólastjóri þar 1942 til ársins 1960. Á sama tíma var hann sóknarprestur á Núpi. Árið 1960 varð hann prestur og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og gegndi þeim stöðum til ársins 1981. Hann hætti þó ekki að sinna skólamálum því hann hafði mikil afskipti af Ljósafossskóla og var m.a. prófdómari þar og sat í skólanefnd.   [1
    Andlát 11 jan. 1987  [2
    Greftrun 17 jan. 1987  Eyrarbakkakirkjugarði, Eyrarbakka, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [2
    • Reitur: 403 [2]
    Legsteinar Mynd af legstein vantar, sendu mér mynd með því að smella hér Mynd af legstein vantar, sendu mér mynd með því að smella hér 
    Nr. einstaklings I9448  Legstaðaleit
    Síðast Breytt 18 des. 2019 

  • Athugasemdir 
    • Eiríkur Júlíus Eiríksson, prestur, skólastjóri og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, fæddist 22.7. 1911 að Ekru í Vestmannaeyjum en fluttist fárra vikna gamall á Eyrarbakka.

      Faðir hans var Eiríkur Magnússon, trésmiður frá Ölfusi. Hann fluttist til Kaliforníu í Bandaríkjunum, um það leyti sem Eiríkur fæddist, og sneri aldrei aftur. Eiríkur ólst upp hjá einstæðri móður sinni, Hildi Guðmundsdóttur frá Iðu í Biskupstungum, og móðurforeldrum sínum, Guðmundi Guðmundssyni og Jónínu Jónsdóttur.

      Eiríkur var í barnaskóla á Eyrarbakka og fór svo í MR og varð stúdent þaðan 1932. Hann tók kennarapróf 1934 og guðfræðipróf frá HÍ 1935. Hann fór svo í framhaldsnám til Basel í Sviss.

      Eiríkur varð kennari á Núpi í Dýrafirði 1935, tók sér árshlé meðan hann kynnti sér skólamál á Norðurlöndunum 1936-1937, fór svo aftur að kenna á Núpi og varð skólastjóri þar 1942 til ársins 1960. Á sama tíma var hann sóknarprestur á Núpi. Árið 1960 varð hann prestur og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og gegndi þeim stöðum til ársins 1981. Hann hætti þó ekki að sinna skólamálum því hann hafði mikil afskipti af Ljósafossskóla og var m.a. prófdómari þar og sat í skólanefnd.

      Eiríkur var einn af forustumönnum ungmennafélagshreyfingarinnar. Hann sat í stjórn UMFÍ frá 1936 og var formaður UMFÍ í um 30 ár. Landsmótin voru honum mikið hjartans mál og átti hann þátt í því að endurvekja þau með Landsmótinu í Haukadal 1940. Hann var ritstjóri Skinfaxa, málgagns UMFÍ, um árabil, skrifaði margar greinar í blöð og tímarit og var mikill ræðuskörungur.

      Kona Eiríks var Kristín Jónsdóttir, f. 5.10. 1917, d. 17.2. 1999. Foreldrar hennar voru Jón Ólafsson, bóndi á Gemlufalli í Dýrafirði og kona hans, Ágústa Guðmundsdóttir.

      Eiríkur lést í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi 11.1. 1987 og hafði þá nýlokið afmælisræðu yfir vini sínum. [1]

  • Andlitsmyndir
    Eiríkur Júlíus Eiríksson
    Eiríkur Júlíus Eiríksson

  • Kort yfir atburði
    Tengill á Google MapsFæðing - 22 júl. 1911 - Ekru (Urðavegi 20), Vestmannaeyjum, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsMenntun - Lauk stúdentsprófi með 1. einkunn, 6,54. - 1932 - Menntaskólanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsGreftrun - 17 jan. 1987 - Eyrarbakkakirkjugarði, Eyrarbakka, Íslandi Tengill á Google Earth
     = Tengill á Google Earth 
    Skýringar á merkingum  : Heimilisfang       : Staðsetning       : Bær/Borg       : Hreppur       : Sýsla       : Land       : Ekki stillt

  • Heimildir 
    1. [S31] Morgunblaðið, 22-07-2013 .

    2. [S1] Gardur.is.

    3. [S26] Vísir, 30-06-1932, s. 4.



Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.

Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.

The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.