Gunnlaugur Pétur Christian Halldórsson
1909 - 1986 (76 ára)-
Fornafn Gunnlaugur Pétur Christian Halldórsson [1, 2] Fæðing 6 ágú. 1909 Vestmannaeyjum, Íslandi [1, 2] Menntun 1925 Gagnfræðaskólanum á Akureyri, Akureyri, Íslandi [2] Útskrifaðist. Menntun 1925-1926 Menntaskólanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi [2] Stundaði nám. Menntun 10 maí 1933 Det Kongelige Danske Kunstakademi, København, Region Hovedstaden, Danmark [2] Útskrifaðist sem arkitekt. Andlát 13 feb. 1986 [1] Greftrun Bessastaðakirkjugarði, Bessastaðahr., Gullbringusýslu, Íslandi [1] Gunnlaugur Pétur Christian Halldórsson
Plot: 67Systkini 2 bræður og 1 systir Nr. einstaklings I8721 Legstaðaleit Síðast Breytt 3 feb. 2022
Faðir Halldór Gunnlaugsson
f. 25 ágú. 1875, Skeggjastöðum, Skeggjastaðahr., N-Múlasýslu, Íslandi
d. 16 des. 1924 (Aldur 49 ára)Móðir Anna Sigrid Gunnlaugsson Therp
f. 16 feb. 1885
d. 22 ágú. 1963 (Aldur 78 ára)Nr. fjölskyldu F3921 Hóp Skrá | Family Chart
Fjölskylda Guðný Þorbjörg Klemensdóttir
f. 8 feb. 1912
d. 23 sep. 1991 (Aldur 79 ára)Börn 1. Halldór Gunnlaugsson
f. 1 nóv. 1941
d. 21 jan. 1959 (Aldur 17 ára)Nr. fjölskyldu F2000 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 13 okt. 2019
-
Athugasemdir - Gunnlaugur Pétur Christian Halldórsson fæddist í Vestmannaeyjum 6. ágúst 1909. Gunnlaugur útskrifaðist úr Gagnfræðaskóla Akureyrar 1925, dvaldist í Menntaskóla Reykjavíkur 1925-1926. Hann fór til náms í byggingarlist í Kaupmannahöfn og útskrifaðist sem arkitekt frá Hinu Konunglega Akademi 10. maí 1933.
Að námi loknu kom hann heim, hóf starf við fag sitt og rak sjálfstæða teiknistofu alla tíð síðan.
Spor Gunnlaugs liggja víða. Af einstökum verkum hans má nefna byggingar S.Í.B.S. að Reykjalundi sem hann vann við allt frá upphafi til dauðadags. Fyrst í samstarfi við Bárð Ísleifsson, síðar einn, en um tíma með Guðmund Kr. Kristinsson sem samstarfsmann. Viðbyggingin við Bessastaði, lagfæringar og breytingar því samfara, ber gott vitni nærfærni funkjónalistans og virðingu hans fyrir eiginleikum eldri byggingarlistar.
Þá má nefna fyrrum hús Búnaðarbankans í Austurstræti, Amtsbókasafnið á Akureyri, stöðvarhús Búrfellsvirkjunar og Háskólabíó teiknaði Gunnlaugur í samvinnu við Guðmund Kr. Kristinsson.
Fyrir margháttuð störf fyrir arkitektafélagið og framlag sitt til íslenskrar byggingarlistar var Gunnlaugur gerður heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands. Hann hlaut einnig aðrar opinberar viðurkenningar fyrir störf sín.
Gunnlaugur lést 13. febrúar 1986 og hvílir hann í Bessastaðakirkjugarði. [2]
- Gunnlaugur Pétur Christian Halldórsson fæddist í Vestmannaeyjum 6. ágúst 1909. Gunnlaugur útskrifaðist úr Gagnfræðaskóla Akureyrar 1925, dvaldist í Menntaskóla Reykjavíkur 1925-1926. Hann fór til náms í byggingarlist í Kaupmannahöfn og útskrifaðist sem arkitekt frá Hinu Konunglega Akademi 10. maí 1933.
-
Ljósmyndir Halldór Gunnlaugsson, læknir ásamt fjölskyldu sinni fyrir utan húsið Kirkjuhvol
Frá hægri: Halldór og hann heldur á syni sínum Gunnlaug, frú Anna Gunnlaugsson með soninn Ólaf. Aðrir eru óþekktir.Gunnlaugur Halldórsson arkitekt flytur ávarp
Andlitsmyndir Gunnlaugur Pétur Christian Halldórsson -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.