Sigríður "Diddý"Stephensen Pálsdóttir
1938 - 2022 (84 ára)-
Fornafn Sigríður Stephensen Pálsdóttir [1, 2] Gælunafn Diddý Fæðing 4 júl. 1938 Ásgeirshúsi, Húsavík, Íslandi [1, 2] Andlát 18 júl. 2022 Landspítalanum í Fossvogi, Reykjavík, Íslandi [1, 2] Greftrun 4 nóv. 2022 Sóllandi - duftgarði, Reykjavík, Íslandi [1] - Reitur: N-5-13 [1]
Legsteinar Mynd af legstein vantar, sendu mér mynd með því að smella hér Nr. einstaklings I21624 Legstaðaleit Síðast Breytt 5 júl. 2024
Fjölskylda Pétur Valgarð Jóhannsson
f. 17 ágú. 1935, Bíldudal, Íslandi
d. 25 feb. 1980 (Aldur 44 ára)Hjónaband 10 sep. 1959 [2] Nr. fjölskyldu F5563 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 5 júl. 2024
-
Athugasemdir - Sigríður eða Diddý, eins og hún var jafnan kölluð, stundaði nám á Bíldudal en síðar við Gagnfræðaskóla Húsavíkur og tók landspróf vorið 1954. Hún dvaldi um skeið á Húsavík en fljótlega lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún hóf nám við Húsmæðraskólann og lauk þaðan prófi vorið 1956. Eftir það dvaldi hún í Reykjavík til ársins 1960, vann fyrst eftir nám í Clausensbúð einn vetur en síðan í Búnaðarbankanum við Austurstræti næstu fjögur árin uns hún flutti til Bíldudals vorið 1960. Þar vann hún ýmis störf, m.a. við verslun og fiskvinnslu og síðar í Landsbankanum uns hún flutti til Reykjavíkur sumarið 1984. Þá hóf hún störf við Landsbankann í Múlaútibúi uns hún lét af störfum 2004.
Diddý var m.a. formaður kvenfélagsins Framsóknar á Bíldudal um margra ára skeið og í stjórn kvennadeildar Slysavarnafélagsins á Bíldudal. Hún söng í kirkjukór Bíldudalskirkju, lék með Leikfélaginu Baldri, spilaði á gítar og söng við ýmis tækifæri. Eftir að hún flutti suður var hún einn af stofnfélögum Landsbankakórsins sem söng við ýmis tækifæri í Reykjavík, úti á landi og tók þátt í kóramótum erlendis. Hún var trúnaðarmaður starfsmanna Landsbankans í Múlaútibúi til margra ára auk annarra starfa sem hún gegndi á vegum bankans. Diddý tók þátt í sveitarstjórnarmálum fyrir vestan og það var fátt sem hún lét sig ekki varða á Bíldudal. Síðasta tæpa árið bjó Diddý á Hrafnistu í Reykjavík. [2]
- Sigríður eða Diddý, eins og hún var jafnan kölluð, stundaði nám á Bíldudal en síðar við Gagnfræðaskóla Húsavíkur og tók landspróf vorið 1954. Hún dvaldi um skeið á Húsavík en fljótlega lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún hóf nám við Húsmæðraskólann og lauk þaðan prófi vorið 1956. Eftir það dvaldi hún í Reykjavík til ársins 1960, vann fyrst eftir nám í Clausensbúð einn vetur en síðan í Búnaðarbankanum við Austurstræti næstu fjögur árin uns hún flutti til Bíldudals vorið 1960. Þar vann hún ýmis störf, m.a. við verslun og fiskvinnslu og síðar í Landsbankanum uns hún flutti til Reykjavíkur sumarið 1984. Þá hóf hún störf við Landsbankann í Múlaútibúi uns hún lét af störfum 2004.
-
Andlitsmyndir Sigríður Stephensen Pálsdóttir -
Kort yfir atburði Andlát - 18 júl. 2022 - Landspítalanum í Fossvogi, Reykjavík, Íslandi Greftrun - 4 nóv. 2022 - Sóllandi - duftgarði, Reykjavík, Íslandi = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.