Ingólfur Guðbrandsson

Ingólfur Guðbrandsson

Maður 1923 - 2009  (86 ára)

Upplýsingar um einstakling    |    Margmiðlun    |    Athugasemdir    |    Heimildir    |    Kort yfir atburði    |    Allt    |    PDF

  • Fornafn Ingólfur Guðbrandsson  [1, 2
    Fæðing 6 mar. 1923  Kirkjubæjarklaustri, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1, 2
    Menntun University College London, London, Englandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [2
    Nam ensku og hljóðfræði. 
    Menntun Guildhall School of Music and Drama, London, Englandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [2
    Tónlistarnám. 
    Menntun 1943  Kennaraskóla Íslands, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [2
    Lauk kennaraprófi. 
    Atvinna 1943  Laugarnesskóla, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [2
    Hóf störf sem kennari. 
    Menntun 1944-1949  Háskóla Íslands, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [2
    Stundaði tungumálanám. 
    Hin íslenska fálkaorða 20 okt. 1977  [3
    Sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að tónlistarmálum. 
    Andlát 3 apr. 2009  Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1, 2
    Greftrun 17 apr. 2009  Fossvogskirkjugarði, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1, 2
    Ingólfur Guðbrandsson
    Ingólfur Guðbrandsson
    Plot: O-619
    Nr. einstaklings I20183  Legstaðaleit
    Síðast Breytt 30 okt. 2023 

  • Athugasemdir 
    • Ingólfur lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1943 og stundaði tungumálanám við Háskóla Íslands á árunum 1944 til 1949. Síðar hélt hann til tónlistarnáms við Guildhall School of Music í London og nam ensku og hljóðfræði við University College í London. Þá stundaði hann framhaldsnám í tónlist við Tónlistarháskólann í Köln, í Augsburg og í Flórens.

      Árið 1943 hóf Ingólfur störf sem kennari við Laugarnesskóla og bryddaði þar upp á ýmsum nýjungum í tónlistarkennslu, þar á meðal morgunsöng sem enn er lifandi hefð í skólastarfinu. Hann var námstjóri tónlistarfræðslu hjá menntamálaráðuneytinu og starfaði sem skólastjóri Barnamúsíkskólans í Reykjavík um skeið. Ingólfur stofnaði ferðaskrifstofuna Útsýn árið 1955 og var forstjóri hennar til ársins 1988. Hann stofnaði ferðaskrifstofuna Prímu og Heimsklúbb Ingólfs, og starfaði á vettvangi ferðamála allt til ársins 2006.

      Ingólfur var frumkvöðull í kórstarfi og tónlistarflutningi á Íslandi. Árið 1957 stofnaði hann Pólýfónkórinn og undir hans stjórn voru frumflutt á Íslandi mörg af stærstu verkum tónbókmenntanna. Kórinn hélt tónleika víða um heim og hafa margar plötur og geisladiskar komið út með söng hans.

      Ingólfur hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1977 og ítölsku riddaraorðunni Cavaliere della Repubblica Italiana sama ár. Árið 1972 var hann gerður að heiðursfélaga Félags íslenskra tónmenntakennara. Þá var hann útnefndur Capo dell’Ordine „Al Merito della Repubblica Italiana“ árið 1991. Í febrúar 2009 hlaut hann heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna. [2]

  • Ljósmyndir
    Ingólfur Guðbrandsson
    Ingólfur Guðbrandsson

    Andlitsmyndir
    Ingólfur Guðbrandsson
    Ingólfur Guðbrandsson

  • Kort yfir atburði
    Tengill á Google MapsFæðing - 6 mar. 1923 - Kirkjubæjarklaustri, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsMenntun - Nam ensku og hljóðfræði. - - University College London, London, Englandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsMenntun - Tónlistarnám. - - Guildhall School of Music and Drama, London, Englandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsAtvinna - Hóf störf sem kennari. - 1943 - Laugarnesskóla, Reykjavík, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsMenntun - Stundaði tungumálanám. - 1944-1949 - Háskóla Íslands, Reykjavík, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsAndlát - 3 apr. 2009 - Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsGreftrun - 17 apr. 2009 - Fossvogskirkjugarði, Reykjavík, Íslandi Tengill á Google Earth
     = Tengill á Google Earth 
    Skýringar á merkingum  : Heimilisfang       : Staðsetning       : Bær/Borg       : Hreppur       : Sýsla       : Land       : Ekki stillt

  • Heimildir 
    1. [S1] Gardur.is.

    2. [S31] Morgunblaðið, 17-04-2009.

    3. [S276] Heimasíða forseta Íslands - https://www.forseti.is/, https://www.forseti.is/fálkaorðan/orduhafaskra/.



Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.

Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.

The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.