Dórothea Sveina Einarsdóttir
1932 - 2011 (79 ára)-
Fornafn Dórothea Sveina Einarsdóttir [1, 2] Fæðing 21 feb. 1932 Holtakotum, Biskupstungnahr., Árnessýslu, Íslandi [1, 2] Menntun 1952 Héraðsskólanum á Laugarvatni, Laugardalshr., Árnessýslu, Íslandi [2] Lauk landsprófi. Menntun 1977 Menntaskólanum við Hamrahlíð, Reykjavík, Íslandi [2] Lauk stúdentsprófi frá öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð. Andlát 16 ágú. 2011 Hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi [1, 2] Greftrun 29 ágú. 2011 Gufuneskirkjugarði, Reykjavík, Íslandi [1, 2] Dórothea Sveina Einarsdóttir & Hörður Bergmann
Plot: B-4-267Nr. einstaklings I19271 Legstaðaleit Síðast Breytt 16 mar. 2023
Fjölskylda Hörður Bergmann
f. 24 apr. 1933
d. 10 okt. 2020, Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi (Aldur 87 ára)Nr. fjölskyldu F4759 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 16 mar. 2023
-
Athugasemdir - Dórothea lauk landsprófi frá Héraðsskólanum að Laugarvatni 1952 og stúdentsprófi frá öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð 1977, stundaði nám við félagsvísindadeild Háskóla Íslands í tvö ár og sótti mörg námskeið og mót tengd starfi sínu og hugðarefnum. Auk húsmóðurstarfa vann Dórothea sem aðstoðarmaður félagsráðgjafa á Kleppsspítala 1972-80, við iðjuþjálfun á Hvítabandinu 1980-86, síðan á dagvistunarheimilinu Hlíðarbæ og á Stuðlaseli – sambýli fyrir fatlaða, og loks starfaði hún við að leiðbeina í handavinnu og stjórna tómstunda- og félagsstarfi á Droplaugarstöðum. Dórothea var virk í félagsstarfi leiðbeinenda og stjórnenda í öldrunarþjónustu og einnig lagði hún Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna lið og sat í stjórn félagsins um skeið.
Dórothea var hagmælt, hagvirk og hafði yndi af söng. Hún tók þátt í margs konar kórstarfi, söngferðum og kóramótum heima og erlendis. Í fyrstu söng hún með Alþýðukórnum, Árnesingakórnum í Reykjavík og Maíkórnum og frá 1968 til 1997 söng hún með Söngsveitinni Fílharmóníu og sat í stjórn kórsins 1983-1988, þar af sem formaður í þrjú ár. Á seinni árum var hún með Senjorítum Kvennakórs Reykjavíkur, Kór Félags eldri borgara og Kirkjukór Grafarholtssóknar og reyndist henni sárt að neyðast til að yfirgefa góðan félagsskap og hugðarefni sín vegna heilsubrests síðustu árin. [2]
- Dórothea lauk landsprófi frá Héraðsskólanum að Laugarvatni 1952 og stúdentsprófi frá öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð 1977, stundaði nám við félagsvísindadeild Háskóla Íslands í tvö ár og sótti mörg námskeið og mót tengd starfi sínu og hugðarefnum. Auk húsmóðurstarfa vann Dórothea sem aðstoðarmaður félagsráðgjafa á Kleppsspítala 1972-80, við iðjuþjálfun á Hvítabandinu 1980-86, síðan á dagvistunarheimilinu Hlíðarbæ og á Stuðlaseli – sambýli fyrir fatlaða, og loks starfaði hún við að leiðbeina í handavinnu og stjórna tómstunda- og félagsstarfi á Droplaugarstöðum. Dórothea var virk í félagsstarfi leiðbeinenda og stjórnenda í öldrunarþjónustu og einnig lagði hún Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna lið og sat í stjórn félagsins um skeið.
-
Andlitsmyndir Dórothea Sveina Einarsdóttir -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.