Kristinn Jensen Aðalsteinsson
1929 - 1953 (23 ára)-
Fornafn Kristinn Jensen Aðalsteinsson [1, 2] Fæðing 21 des. 1929 Bakkakoti, Engihlíðarhr., A-Húnavatnssýslu, Íslandi [1] Atvinna 1953 [3] Matsveinn á vélbátnum Guðrúnu VE 163. Guðrún VE 163
Guðrún VE 163 var hinn traustasti bátur, 49 smálestir að stærð smíðaður úr eik í Eyjum 1943, en 1949 keypti Ársæll Sveinsson útgerðarmaður hann ásamt tveimur sonum sínum, þeim Lárusi og Svein.
Skoða umfjöllun. Andlát 23 feb. 1953 [3] Ástæða: Fórst með vélbátnum Guðrúnu VE 163 við Elliðaey. Greftrun Vestmannaeyjakirkjugarði, Vestmannaeyjum, Íslandi [1] Kristinn Jensen Aðalsteinsson
Plot: C-09-12Nr. einstaklings I17377 Legstaðaleit Síðast Breytt 22 sep. 2022
Fjölskylda Sigríður Alda Eyjólfsdóttir
f. 19 mar. 1930
d. 20 jan. 2010 (Aldur 79 ára)Nr. fjölskyldu F4300 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 22 sep. 2022
-
Athugasemdir - Kristinn Jensen Aðalsteinsson var fæddur að Bakkakoti í Austur-Húnavatnssýslu 21. desember 1929. Kornungur fluttist hann til Reykjavíkur með foreldrum sínum og ólst þar upp til fullorðinsára eða allt þar til hann fluttist til Vestmannaeyja með konu sinni, ári áður en hann lést. Settust þau að í Laugardal hjá tengdaforeldrum hans.
Kristinn hóf sjómennsku sem annar matsveinn á togara 13 ára gamall og stundaði sjóinn alltaf eftir það. 15 ára gamall sigldi hann eina ferð til Englands fyrsti matsveinn og munu fáir hafa gegnt því starfi svo ungir. Eftir það stundaði hann sjómennsku á togurum, flutningaskipum og vélbátum til æviloka. Síðast var hann matsveinn á vélbátnum Guðrúnu hjá mági sínum Óskari Eyjólfssyni.
Kristinn lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn.
Hann hvílir í Vestmannaeyjakirkjugarði. [4, 5]
- Kristinn Jensen Aðalsteinsson var fæddur að Bakkakoti í Austur-Húnavatnssýslu 21. desember 1929. Kornungur fluttist hann til Reykjavíkur með foreldrum sínum og ólst þar upp til fullorðinsára eða allt þar til hann fluttist til Vestmannaeyja með konu sinni, ári áður en hann lést. Settust þau að í Laugardal hjá tengdaforeldrum hans.
-
Andlitsmyndir Kristinn Jensen Aðalsteinsson
Minningargreinar Kristinn Jensen Aðalsteinsson Kristinn Jensen Aðalsteinsson -
Kort yfir atburði Fæðing - 21 des. 1929 - Bakkakoti, Engihlíðarhr., A-Húnavatnssýslu, Íslandi Greftrun - - Vestmannaeyjakirkjugarði, Vestmannaeyjum, Íslandi = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.