Játvarður Jökull Júlíusson
1914 - 1988 (73 ára)-
Fornafn Játvarður Jökull Júlíusson [1, 2] Fæðing 6 nóv. 1914 Miðjanesi/Miðjunesi, Reykhólahr., A-Barðastrandarsýslu, Íslandi [1] Menntun 1938 Bændaskólanum á Hvanneyri, Hvanneyri, Íslandi [3] Búfræðingur. Andlát 15 okt. 1988 Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð, Reykhólahr., A-Barðastrandarsýslu, Íslandi [1, 2, 4] Greftrun Kirkjugarðinum að Stað á Reykjanesi, Reykhólahr., A-Barðastrandarsýslu, Íslandi [1] Játvarður Jökull Júlíusson Nr. einstaklings I16685 Legstaðaleit Síðast Breytt 1 jún. 2022
Faðir Júlíus Jóhann Ólafsson
f. 20 júl. 1863
d. 25 mar. 1941 (Aldur 77 ára)Móðir Helga Jónsdóttir
f. 26 des. 1880, Brandsstöðum, Reykhólahr., A-Barðastrandarsýslu, Íslandi
d. 15 apr. 1939, Miðjanesi/Miðjunesi, Reykhólahr., A-Barðastrandarsýslu, Íslandi (Aldur 58 ára)Nr. fjölskyldu F4109 Hóp Skrá | Family Chart
Fjölskylda Rósa Halldóra Hjörleifsdóttir
f. 9 okt. 1920, Ólafsvöllum, Skeiðahr., Árnessýslu, Íslandi
d. 15 júl. 2007, Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð, Reykhólahr., A-Barðastrandarsýslu, Íslandi (Aldur 86 ára)Nr. fjölskyldu F4110 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 1 jún. 2022
-
Athugasemdir - Játvarður Jökull Júlíusson fæddist á Miðjanesi í Reykhólasveit og aldi sinn aldur þar. Búfræðingur varð hann frá Hvanneyri 1938 og hóf vorið 1939 eigin búskap á Miðjanesi ásamt konu sinni Rósu Hjörleifsdóttur.
Fram yfir fertugsaldur var Játvarður Jökull heill maður, en upp úr því visnuðu handleggir hans og fótleggir svo honum varð þaðan í frá meinað að vinna það erfiði er fylgdi bóndastarfinu. Hendurnar urðu honum einnig meö öllu ónýtar til ritstarfa vegna lömunar. Mun fáum hent að gerast rithöfundar þegar svo er komið.
Játvarður var hinsvegar einn þessara fáu sem mega kallast ósigrandi og hafði hann gott höfuð sem var heilt. Þess vegna skrifaði hann bækur sínar og önnur ritverk með höfðinu - ekki bara að hugsunin hafi fæðst þar - heldur skrifaði hann með höfðinu í bókstaflegum skilningi, stakk haglegu priki milli tanna sér og pikkar með því á ritvélina. Og Játvarður Jökull var góður rithöfundur.
Auk aragrúa af greinum sem birtust í blöðum og tímaritum, liggja eftir Játvarð þrjár bækur. Þær eru "Umleikinn ölduföldum, ágrip ættarsagna Hergilseyinga", "Sagan af Sigríði stórráðu" og loks "Saga Torfa Bjarnasonar og Ólafsdalsskóla og nemendatal Ólafsdalsskóla 1880-1907". Einnig ritstýrði Játvarður Markaskrá Austur-Barðastrandarsýslu og sat í ritnefnd Árbókar Barðastrandarsýslu.
Játvarður Jökull Júlíusson lést á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum og hvílir hann í Kirkjugarðinum að Stað á Reykjanesi, Reykhólahr., A-Barð. [5, 6]
- Játvarður Jökull Júlíusson fæddist á Miðjanesi í Reykhólasveit og aldi sinn aldur þar. Búfræðingur varð hann frá Hvanneyri 1938 og hóf vorið 1939 eigin búskap á Miðjanesi ásamt konu sinni Rósu Hjörleifsdóttur.
-
Ljósmyndir Játvarður Jökull Júlíusson fræðimaður og fyrrum bóndi í Miðjanesi, A-Barð. var lamaður upp að hálsi. Hann lét það ekki stoppa sig og vélritaði með munninum.
Skjöl Kannsi glórulaus ofdirska
segir Játvarður Jökull sem er að skrifa sögu Ólafsdalsskóla og nemendatal skólans með tréstauti á tölvu.
Andlitsmyndir Játvarður Jökull Júlíusson Játvarður Jökull Júlíusson
Minningargreinar Minning - Játvarður Jökull Júlíusson -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.