Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson

Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson

Maður 1945 - 1978  (32 ára)

Upplýsingar um einstakling    |    Margmiðlun    |    Athugasemdir    |    Heimildir    |    Kort yfir atburði    |    Allt    |    PDF

  • Fornafn Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson  [1, 2
    Fæðing 11 apr. 1945  Merkinesi í Höfnum, Hafnahr., Gullbringusýslu, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1, 2
    Menntun 1964  Menntaskólanum á Akureyri, Akureyri, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [2
    Stúdent. 
    Andlát 28 mar. 1978  Lúxemborg Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1
    Ástæða: Lést í bílslysi. 
    Vilhjálmur Vilhjálmsson söngvari látinn: Fórst í bílslysi í Lúxemburg í gærkvöldi
    Vilhjálmur Vilhjálmsson söngvari látinn: Fórst í bílslysi í Lúxemburg í gærkvöldi
    Greftrun 4 apr. 1978  Fossvogskirkjugarði, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað  [1
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Plot: R-372
    Nr. einstaklings I16442  Legstaðaleit
    Síðast Breytt 21 ágú. 2024 

    Faðir Vilhjálmur Hinrik Ívarsson
              f. 12 ágú. 1899  
              d. 24 jan. 1994 (Aldur 94 ára) 
    Móðir Hólmfríður Oddsdóttir
              f. 29 apr. 1906, Reykjavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað
              d. 5 jún. 1994, Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, Íslandi Finna alla einstaklinga með viðburði á þessum stað (Aldur 88 ára) 
    Hjónaband 18 des. 1926  [3
    Nr. fjölskyldu F5648  Hóp Skrá  |  Family Chart

  • Athugasemdir 
    • Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson fæddist 11. apríl 1945 í Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjum. Foreldrar hans voru hjónin Vilhjálmur Hinrik Ívarsson harmonikkuleikari og söngmaður, og Hólmfríður Oddsdóttir. Vilhjálmur ólst upp á Merkinesi hjá foreldrum sínum og systkinum, en hann var yngstur fimm systkina. Næstelst var Elly, sem var orðin landsþekkt söngkona áður en litli bróðir hennar steig fram í sviðsljósið. Hinrik í Merkinesi, faðir þeirra systkina var þekktur veiðimaður, sjósóknari og hagyrðingur.

      Vilhjálmur gekk í barnaskólann á svæðinu og fór svo í 1. bekk gagnfræðiskólans í Keflavík en þaðan í Héraðsskólann að Laugarvatni. Á skólaárunum var hann iðulega kallaður Hólmar. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1964 en það var einmitt þar sem hann hóf tónlistarferil sinn með hljómsveitinni Busabandinu árið 1961, þar sem hann spilaði á bassa og söng. Fram að þeim tíma hafði hann ekki mikla trú á tónlistarhæfileikum sínum og stefndi ekki á frama á því sviði, þrátt fyrir að koma úr mikilli tónlistarfjölskyldu.

      Vilhjálmur fylgdi fyrrverandi meðlimi úr Busabandinu, Þorvaldi Halldórssyni, og réð sig í Hljómsveit Ingimars Eydal árið 1965. Þegar Óðinn Valdimarsson söngvari hætti tóku Vilhjálmur og Þorvaldur sönginn alveg að sér. Með Vilhjálmi og Þorvaldi tókst góður vinskapur, enda voru þeir á sama aldri á meðan að aðrir meðlimir sveitarinnar voru töluvert eldri.

      Sumarið 1965 gerði Ingimar Eydal samning við útgáfufyrirtæki Svavar Gests, sem þá var nýgiftur Elly systur Vilhjálms, um tvær fjögurra laga plötur. Síðla það sumar tóku Vilhjálmur og Þorvaldur upp plöturnar tvær, en þetta var frumraun söngvaranna beggja við upptökur og plötuútgáfu.

      Á plötunum var m.a. að finna lögin, Litla sæta ljúfan góða, Raunasaga og Vor í Vaglaskógi með Vilhjálmi og Á sjó, sem Þorvaldur söng. Urðu þeir félagarnir samstundist landsþekktir og plöturnar seldust í bílförmum.

      Eftir stúdentsprófið kenndi Vilhjálmur ensku við gagnfræðaskólann á Akureyri og var í aukastarfi sem blaðamaður við Dag. En svo hætti hann, eins og áður er nefnt, í hljómsveit Ingimars Eydal og fluttist til Reykjavíkur til að hefja nám í læknisfræði. Hann sagði þó ekki skilið við tónlistina og vann fyrir sér með því að syngja með Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem lék á veitingahúsinu Röðli næstum öll kvöld. Var hann tvo vetur í læknisfræðináminu en komst að því að læknisstarfið myndi ekki eiga við hann næstu 40-50 árin, svo hann hætti og helgaði sig þá alfarið tónlistinni.

      Vilhjálmur var þrjú ár hjá Magnúsi Ingimarssyni, frá 1966-69, en þar söng hann m.a. með söngkonunum Önnu Vilhjálms, Mörtu Bjarnadóttur og Þuríði Sigurðardóttur. Á þessum tíma kom út plata með hljómsveit Magnúsar, og á þeirri plötu var m.a. lagið "S.O.S. ást í neyð" sem varð mjög vinsælt.

      Vilhjálmur söng inn á fjórar plötur með systur sinni Elly, sú fyrsta, Systkinin Vilhjálmur og Elly syngja saman, kom út árið 1969. Allar plöturnar nutu mikilla vinsælda og varla er til sá Íslendingur sem ekki getur raulað með lagi af jólaplötu þeirra systkina.

      Árið 1969 gekk Vilhjálmur til liðs við Sextett Ólafs Gauks á Borginni og lék með honum til vorsins 1970, en hætti þá skyndilega er hann fékk tilboð um flugstarf á vegum flugfélagsins Luxor í Lúxemborg. Þangað flutti hann árið 1970 og sagðist hann hafa verið orðinn þreyttur á hljómsveitarbransanum og viljað reyna eitthvað nýtt. Hann kom þó reglulega heim í frí og söng inn á plötur. Hann gaf út sólóplötu árið 1972 sem sló rækilega í gegn, platan innihélt vinsæl lög eins og Bíddu pabbi, og Ó mín kæra vina.

      Árið 1976 kom svo út platan Með sínu nefi þar sem Vilhjálmur söng lög sem hann lét semja við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Vilhjálmur kynntist Kristjáni fyrst í gegnum pólitík á Akureyri og var eftir honum haft að Kristjáni gleymdi maður ekki eftir að hafa einu sinni hitt hann. Fannst Vilhjálmi Kristján vera eitt besta ljóðskáld á Íslandi á þeim tíma.

      Vilhjálmur er einn ástsælasti söngvari Íslands fyrr og síðar, og skín frægðarsól hans jafn skært í dag og þegar söngferill hans stóð sem hæst. Til dæmis var Vilhjálmur valinn söngvari aldarinnar í aldamótaveislu íslenskra tónlistarmanna sem haldin var árið 1999.

      Árið 2009 kom út ævisaga Vilhjálms eftir Jón Ólafsson.

      Þann 28. mars 1978 var Vilhjálmur staddur í Lúxemborg á vegum Arnarflugs, en hann var flugmaður hjá því félagi. Var hann einn á ferð í bílaleigubíl er bíll hans fór út af veginum og lenti á tré. Lést hann samstundis.
      Vilhjálmur var 32 ára að aldri og lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

      Vilhjálmur hvílir í Fossvogskirkjugarði. [4, 5, 6, 7, 8]

  • Ljósmyndir
    Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem kom fram á Röðli 1968. Söngvarar voru Vilhjálmur Vilhjálmsson og Þuríður Sigurðardóttir.
    Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem kom fram á Röðli 1968. Söngvarar voru Vilhjálmur Vilhjálmsson og Þuríður Sigurðardóttir.
    Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem kom fram á Röðli 1968. Söngvarar voru Vilhjálmur Vilhjálmsson og Þuríður Sigurðardóttir.
    Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem kom fram á Röðli 1968. Söngvarar voru Vilhjálmur Vilhjálmsson og Þuríður Sigurðardóttir.
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Mynd Sigurgeir Sigurjónsson

    Skjöl
    Pólitík og trúmál eru mannskemmandi. Viðtal við Vilhjálm Vilhjálmsson söngvara og flugmann.
    Pólitík og trúmál eru mannskemmandi. Viðtal við Vilhjálm Vilhjálmsson söngvara og flugmann.

    Sögur
    Sé samviskan í lagi, er allt í lagi
    Sé samviskan í lagi, er allt í lagi
    Rætt við Vilhjálm Vilhjálmsson, söngvara, hljóðfæraleikara, dávald, heimspeking, lugmann, heimilisföður og fyrrverandi stud. jur. & med.

    Andlitsmyndir
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson
    Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson

  • Kort yfir atburði
    Tengill á Google MapsFæðing - 11 apr. 1945 - Merkinesi í Höfnum, Hafnahr., Gullbringusýslu, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsMenntun - Stúdent. - 1964 - Menntaskólanum á Akureyri, Akureyri, Íslandi Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsAndlát - Ástæða: Lést í bílslysi. - 28 mar. 1978 - Lúxemborg Tengill á Google Earth
    Tengill á Google MapsGreftrun - 4 apr. 1978 - Fossvogskirkjugarði, Reykjavík, Íslandi Tengill á Google Earth
     = Tengill á Google Earth 
    Skýringar á merkingum  : Heimilisfang       : Staðsetning       : Bær/Borg       : Hreppur       : Sýsla       : Land       : Ekki stillt

  • Heimildir 
    1. [S1] Gardur.is.

    2. [S392] Vikan, 16.12.1976, s. 12.

    3. [S31] Morgunblaðið, 14.06.1994, s. 42.

    4. [S152] Fréttablaðið, 11.04.2015, s. 84.

    5. [S392] Vikan, 16.12.1976, s. 13.

    6. [S173] Faxi, 01.03.1990, s. 71.

    7. [S26] Vísir, 29.03.1978, s. 24.

    8. [S1420] Glatkistan.



Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.

Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.

The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.