Benóný "Binni í Gröf"Friðriksson
1904 - 1972 (68 ára)-
Fornafn Benóný Friðriksson [1, 2] Gælunafn Binni í Gröf Fæðing 7 jan. 1904 Gröf, Vestmannaeyjum, Íslandi [1, 2] Hin íslenska fálkaorða 1 jan. 1971 Bessastöðum, Bessastaðahr., Gullbringusýslu, Íslandi [3] Veittur Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu yrir sjómennsku og skipstjórnarstörf. Andlát 12 maí 1972 Sjúkrahúsi Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum, Íslandi [1, 2] Greftrun 20 maí 1972 Vestmannaeyjakirkjugarði, Vestmannaeyjum, Íslandi [1] Benóný Friðriksson & Sigríður Katrín Sigurðardóttir
Plot: F-31-8, F-31-9Systkini 3 systur Nr. einstaklings I16413 Legstaðaleit Síðast Breytt 8 ágú. 2024
Faðir Friðrik Gissur Benónýsson
f. 14 ágú. 1858, Núpi undir Eyjafjöllum, Vestur-Eyjafjallahr., Rangárvallasýslu, Íslandi
d. 23 ágú. 1943, Vestmannaeyjum, Íslandi (Aldur 85 ára)Móðir Oddný Benediktsdóttir
f. 15 des. 1865
d. 10 apr. 1940 (Aldur 74 ára)Hjónaband 12 nóv. 1886 [4] Nr. fjölskyldu F4080 Hóp Skrá | Family Chart
Fjölskylda Sigríður Katrín Sigurðardóttir
f. 26 maí 1909
d. 28 jún. 1979 (Aldur 70 ára)Börn 1. Sævar Benónýsson
f. 11 feb. 1931
d. 15 jan. 1982 (Aldur 50 ára)Nr. fjölskyldu F4042 Hóp Skrá | Family Chart Síðast Breytt 22 des. 2022
-
Athugasemdir - Benóný Friðriksson fæddist í Gröf í Vestmannaeyjum 7. janúar 1904. Foreldrar hans voru hjónin Friðrik Benónýsson formaður og dýralæknir frá Núpi undir Eyjafjöllum og kona hans Oddný Benediktsdóttir frá Syðstu-Grund í sömu sveit. Þau áttu 20 börn og var Binni eitt af 12 þeirra sem náðu fullorðinsaldri.
Binni ólst upp með foreldrum sínum og systkinum í Gröf, en við húsnafnið Gröf var hann kenndur til æviloka og nefndur Binni í Gröf. Binni varð snemma mikill fyrir sér. Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum og innan við fermingu var hann farinn að róa. Það var á smáferju hjá Jakobi Tranberg og kom þá fljótt í ljós hjá honum framúrskarandi áhugi og fisksæld á handfærakrókinn. Þegar hann var fimmtán ára byrjaði hann formennsku að sumri til á sexæring, ásamt þremur vinum sínum. Fiskuðu félagarnir vel undir styrkri stjórn Binna og þarna komu strax í ljós afburða skipstjórnarhæfileikar hans, sem seinna gerðu hann að landsfrægum aflaskipstjóra sem varð alla tíð jafnvígur á öll veiðarfæri sem hann notaði til veiða.
Síðan var Binni með marga báta. Fyrsti vélbáturinn sem hann var með hét Friðþjófur Nansen, en hann var í eigu föður hans og fleiri. Síðan tók Gulla við, Newcastle, Gulltoppur, Sjöstjarnan, Sævar og Andvari, svo nokkrir séu nefndir, en árið 1954 tók hann við þeim bát sem hann var með til dauðadags, Gullborg RE 38 sem hann keypti ásamt Einari Sigurðssyni frá Heiði. Gullborgin varð hin mesta happafleyta fyrir Binna, en hann varð fyrst aflakóngur árið 1954 á henni og svo næstu sex vertíðir í röð eftir það. Alls varð hann aflakóngur Vestmannaeyja sjö sinnum og mörgum sinnum var hann líka hæstur yfir allt landið. Á þessum árum fylgdist öll þjóðin með tíðum fréttum af aflabrögðum og aflaklóm.
Binni var afburðasjómaður og einhver mesta aflakló sem fiskað hefur frá Vestmannaeyjum. Hann þekkti botninn í kringum Eyjar eins og lófann á sér. Hann þótti góður skipstjórnarmaður en var kröfuharður við sjálfan sig og skipshöfn sína, enda hafði hann ávallt á að skipa samhentri og harðduglegri skipshöfn. Þegar Ási í Bæ, annar landsþekktur Eyjamaður, tók að sér að skrifa bókakafla um Binna í bókinni Aflamenn, spurði hann Binna m.a. um mannskapinn. Binni svaraði þannig: ,,Ágætur mannskapur. ekki neinir kraftakarlar en liðlegir strákar, samhentir, og góður andi um borð. Það er andinn um borð sem er svo mikils virði. Ég hef alltaf haft góðan mannskap, stundum afbragðs lið. Það er ekki hægt að fiska nema með góðum mannskap."
Binni þótti lipur knattspyrnumaður á sínum yngri árum, var einn stofnenda Týs, afburðafimleikamaður og hafði mikinn áhuga á lundaveiðum. Hann var orðheppinn og áhugamaður um kveðskap, kunni ógrynni af lausavísum og kvaðst gjarnan á við félagana. Hann var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.
Binni kvæntist Katrínu Sigurðardóttur frá Þinghól í Hvolshreppi. Þau eignuðust 8 börn saman.
Í byrjun maí 1972 var Binni á leið í bátinn sinn í Vestmannaeyjahöfn, er hann féll af bryggjunni. Binni féll í V á leið í bátinn sinn og lést rúmri viku síðar á sjúkrahúsi Vestmannaeyja þann 12. maí 1972. Útför hans var gerð frá Landakirkju að viðstöddu miklu fjölmenni. Vottuðu bæjarbúar og sjómenn í Vestmannaeyjum hinum látna margháttaða virðingu sína. Allir bátar voru í höfn og var flaggað í hálfa stöng á flotanum. Úr kirkju báru kistuna skipshöfnin á Gullborgu en síðan báru í kirkjugarð eldri félagar Benónýs úr röðum skipstjóra. Frá kirkjudyrum stóðu félagar úr Verðandi heiðursvörð.
Binni í Gröf hvílir í Vestmannaeyjakirkjugarði við hlið Katrínar konu hans. [5, 6, 7, 8, 9]
- Benóný Friðriksson fæddist í Gröf í Vestmannaeyjum 7. janúar 1904. Foreldrar hans voru hjónin Friðrik Benónýsson formaður og dýralæknir frá Núpi undir Eyjafjöllum og kona hans Oddný Benediktsdóttir frá Syðstu-Grund í sömu sveit. Þau áttu 20 börn og var Binni eitt af 12 þeirra sem náðu fullorðinsaldri.
-
Ljósmyndir Binni í Gröf Aflaklóin mikla
Þessi golþorskur slapp ekki frá Binna í Gröf enda virtist hann hafa sjötta skilningarvitið þegar hafið var annars vegar. Hann þekkti botninn eins og buxnavasana sína.
Skjöl Aldarminning aflakóngs Nafn Binna í Gröf lýsir sem viti
Andlitsmyndir Benóný Friðriksson Benóný Friðriksson -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir - [S1] Gardur.is.
- [S397] Eyjafréttir, 22.01.2004, s. 10.
- [S276] Heimasíða forseta Íslands - https://www.forseti.is/, https://www.forseti.is/f%C3%A1lkaor%C3%B0an/orduhafaskra/.
- [S317] Heimaslóð.is, https://heimaslod.is/index.php/Blik_1980/Hj%C3%B3nin_%C3%AD_Gr%C3%B6f#/.
- [S408] Bæjarins besta, http://www.bb.is/2021/01/merkir-islendingar-binni-i-grof/.
- [S1370] Fiskifréttir, 06.06.1986, s. 5.
- [S176] Ægir, 2020, s. 26.
- [S317] Heimaslóð.is, https://www.heimaslod.is/index.php/Binni_í_Gröf.
- [S174] Sjómannablaðið Víkingur, 01.08.1972, s. 319.
- [S1] Gardur.is.
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.