Harald Sigurbjörn Holsvik
1944 - 2018 (74 ára)-
Fornafn Harald Sigurbjörn Holsvik [1, 2] Fæðing 23 mar. 1944 Reykjavík, Íslandi [1, 2] Andlát 27 des. 2018 Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi [1, 2] Greftrun 7 jan. 2019 Mosfellskirkjugarði eldri, Mosfellsbæ, Íslandi [1, 2] Harald Sigurbjörn Holsvik
Plot: A-29Nr. einstaklings I10801 Legstaðaleit Síðast Breytt 27 des. 2020
Móðir Jóhanna Dagmar Björnsdóttir
f. 25 nóv. 1906, Brunnum í Suðursveit, Borgarhafnarhr., A-Skaftafellssýslu, Íslandi
d. 31 ágú. 2003, Keldulandi 21, Reykjavík, Íslandi (Aldur 96 ára)Nr. fjölskyldu F2594 Hóp Skrá | Family Chart
-
Athugasemdir - Harald ólst upp hjá móður sinni í Reykjavík, frá fimm til tólf ára aldurs hafði hann sumardvöl hjá móðurfólki sínu í Hestgerði í Suðursveit. Frá árinu 1956 til 1962 vann hann sumarstörf hjá Vegagerð ríkisins. Harald gekk í Miðbæjarskólann og síðan í Gagnfræðaskóla verknáms. Hann lauk loftskeytaprófi 1963, sveinsprófi/löggildingarprófi í rafvirkjun og prófi frá Arbetarskyddsstyrelsen í Svíþjóð í heilbrigðis- og vinnuverndarfræðum. Hann lauk diplómanámi í mannauðsstjórnun frá HR.
Harald starfaði hjá Landhelgisgæslunni og Hafrannsóknastofnun um 10 ára skeið sem loftskeyta- og tækjamaður. Eftirlitsmaður með rafkerfum skipa hjá Siglingamálastofnum, heilbrigðisráðunautur við Heilbrigðiseftirlit ríkisins og starfaði við mengunarmælingar hjá Hollustuvernd ríkisins á árunum 1976-1985. Hann var framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambands Íslands frá 1985-1990 og framkvæmdastjóri Stýrimannafélags Öldunnar frá 1990-1994, loftskeyta- og fjarskiptamaður hjá Reykjavíkradíó 1994-2003, vakt- og varðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og hjá Vaktstöð siglinga frá 2003 og til starfsloka.
Harald starfaði ötullega að félagsmálum sjómanna. Sat m.a. í stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, fulltrúi Félags ísl. loftskeytamanna í sjómannadagsráði, í ritnefnd Sjómannadagsblaðsins og varaformaður Félags íslenskra loftskeytamanna.
Harald byrjaði ungur að leika á harmonikku og trommur, lék í hljómsveitum á yngri árum, með Gretti Björnssyni o.fl.
Harald var formaður Félags aldraðra í Mosfellsbæ og nágrennis / FaMos frá 2014-2018. [2]
- Harald ólst upp hjá móður sinni í Reykjavík, frá fimm til tólf ára aldurs hafði hann sumardvöl hjá móðurfólki sínu í Hestgerði í Suðursveit. Frá árinu 1956 til 1962 vann hann sumarstörf hjá Vegagerð ríkisins. Harald gekk í Miðbæjarskólann og síðan í Gagnfræðaskóla verknáms. Hann lauk loftskeytaprófi 1963, sveinsprófi/löggildingarprófi í rafvirkjun og prófi frá Arbetarskyddsstyrelsen í Svíþjóð í heilbrigðis- og vinnuverndarfræðum. Hann lauk diplómanámi í mannauðsstjórnun frá HR.
-
Andlitsmyndir Harald Sigurbjörn Holsvik -
Kort yfir atburði Fæðing - 23 mar. 1944 - Reykjavík, Íslandi Andlát - 27 des. 2018 - Landspítalanum í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi Greftrun - 7 jan. 2019 - Mosfellskirkjugarði eldri, Mosfellsbæ, Íslandi = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.