Margrét Vilmundardóttir
1926 - 2013 (87 ára)-
Fornafn Margrét Vilmundardóttir [1, 2] Fæðing 12 nóv. 1926 Mófellsstöðum, Skorradalshr., Borgarfjarðarsýslu, Íslandi [1, 2] Andlát 30 nóv. 2013 Dvalarheimilinu Brákarhlíð, Borgarnesi, Íslandi [1, 2] Greftrun Hvanneyrarkirkjugarði, Hvanneyri, Íslandi [1] Margrét Vilmundardóttir
Plot: Q-10Systkini 3 bræður Nr. einstaklings I10378 Legstaðaleit Síðast Breytt 31 júl. 2020
Faðir Vilmundur Jónsson
f. 18 jún. 1884
d. 20 maí 1959 (Aldur 74 ára)Móðir Guðfinna Sigurðardóttir
f. 30 maí 1894, Brúsastöðum, Hafnarfirði, Íslandi
d. 30 jún. 1984 (Aldur 90 ára)Hjónaband 6 des. 1924 [3] Nr. fjölskyldu F2482 Hóp Skrá | Family Chart
-
Athugasemdir - Margrét ólst upp á Mófellsstöðum ásamt bræðrum sínum í faðmi stórrar fjölskyldu – foreldra og föðursystkina. Hún var í barnaskóla í sveitinni sinni fram að fermingu, einn vetur var hún í héraðsskóla í Varmahlíð. Hún stundaði svo nám í tvo vetur við Húsmæðraskólann á Hallormsstað og lauk prófi þaðan vorið 1948. Eftir það var Margrét við ýmis tilfallandi störf í Reykjavík, einkum yfir vetrartímann. Hún vann meðal annars í fiski og við ýmiskonar heimilisstörf á vetrum.
Á sumrin starfaði hún oftast á fjölmennu æskuheimili sínu á Mófellsstöðum, þar sem rekinn var myndarlegur búskapur. Þegar faðir hennar var látinn og móðir hennar orðin heilsulítil settist hún alfarið að á Mófellsstöðum. Hún bjó þar félagsbúi ásamt bræðrum sínum og móður, meðan hennar naut við. Hún sinnti umfangsmiklum húsmóðurstörfum á Mófellsstöðum, en þar var lengstum margt fólk í heimili og fjölmörg sumardvalarbörn nutu umhyggju hennar.
Síðustu ár átti Margrét við vanheilsu að stríða og dvaldi undir það síðasta á Dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi, þar sem hún lést. [2]
- Margrét ólst upp á Mófellsstöðum ásamt bræðrum sínum í faðmi stórrar fjölskyldu – foreldra og föðursystkina. Hún var í barnaskóla í sveitinni sinni fram að fermingu, einn vetur var hún í héraðsskóla í Varmahlíð. Hún stundaði svo nám í tvo vetur við Húsmæðraskólann á Hallormsstað og lauk prófi þaðan vorið 1948. Eftir það var Margrét við ýmis tilfallandi störf í Reykjavík, einkum yfir vetrartímann. Hún vann meðal annars í fiski og við ýmiskonar heimilisstörf á vetrum.
-
Andlitsmyndir Margrét Vilmundardóttir -
Kort yfir atburði = Tengill á Google Earth Skýringar á merkingum : Heimilisfang : Staðsetning : Bær/Borg : Hreppur : Sýsla : Land : Ekki stillt
-
Heimildir
Þessi síða er hönnuð af The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, sem er búið til af Darrin Lythgoe © 2001-2024.
Umsjón síðu Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Persónuverndarstefna.
The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.