Klyppsstaðarkirkja er í Loðmundarfirði í N-Múlasýslu. Hún var reist 1895 en prestur sat þar til 1888. Eftir það var staðnum þjónað frá Dvergasteini og síðar Seyðisfirði, en Klyppstaðarkirkja hefur aldrei verið afhelguð.
Klyppsstaðarkirkjugarður stendur á sléttum grasbala og hallar lítið eitt til suðurs, umlukinn grasigrónum úthaga. Kirkjan stendur í norðvesturhorni garðsins sem er 528 fermetrar að stærð. Garðurinn er girtur með netgirðingu sem fest er á rekaviðarstaura og er einn gaddavírsstrengur efst. Að norðan og austan er upphlaðinn veggur úr torfi og grjóti og standa girðingarstaurarnir ofan á honum. Lítið hvítmálað sáluhlið úr timbri er á girðingunni vestanverðri á móts við kirkjudyr. Það er úr sívölum staurum og milli þeirra mynda tvær slár ris með sama halla og er á kirkjuþaki. Fyrir sáluhliði er einföld hliðgrind úr lóðréttum trérimlum ydduðum í toppinn. Enginn trjágróður er í garðinum og aðeins tvö minnismerki.
Garðurinn hefur ekki verið sléttaður og því má sjá móta fyrir leiðum. Í vísitasíu 1899 er sagt að garðurinn sé í góðu standi en 1929 er hann víða fallinn og að heita útgrafinn. Í biskupsvísitasíu árið 1956 er bent á að þurfi að hirða garðinn betur og girðingin um hann sé ekki gripheld. Einnig kemur fram að fallið hafi skriða mjög nærri kirkjugarðinum og geti honum stafað hætta af skriðuhlaupi. Þurfi að koma í veg fyrir þá hættu með því að ýta upp varnargarði sem mundi verja kirkjugarðinn. Í biskupsvísitasíum 1968 og 1987 er bent á að garðurinn sé óvarinn og eigi gripheldur og úr því verði að bæta. Í tengslum við 100 ára afmæli kirkjunnar árið 1996 réðst átthagafélag Loðmundarfjarðar í að endurgirða garðinn, smíða nýtt sáluhlið og koma kirkjugarðinum í það horf sem hann er nú í.
Það var ekki auðvelt að finna upplýsingar um Klyppsstaðarkirkjugarð eða þá sem hvíla þar. Ég fór í gegnum kirkjubækurnar sem eru tengdar Klyppsstaðarsókn og skráði þá sem ég gat með vissu talið jarðaða í kirkjugarðinum, en náði samt aðeins að skrá rétt rúmlega 20 einstaklinga þar (þegar þetta er skrifað í febrúar 2024).
Í garðinum eru eingöngu 2 minningarmerki sjáanleg, þannig að það var ekki hægt að styðjast við legsteina við skráninguna.
Ólafía Herborg Jóhannsdóttir fær kærar þakkir fyrir að hafa sent mér upplýsingar um hjónin í Stakkahlíð, Stefán Gunnarsson og Þorbjörgu Þórðardóttur, og afkomendur þeirra.
Heimildir:
Austurglugginn 16.07.2010, s. 3
Kirkjur Íslands 25. bindi, s. 152
23 |
9 |
Jósep Jósepsson
Hluti af Klyppsstaðarprestakalli í Loðmundarfirði (–1888).
Hluti af Dvergasteinsprestakalli (1888-1973).
- Klyppsstaður í Loðmundarfirði - Prestþjónustubók 1784-1816
Prestsþjónustubók 1784-1816. Séra Finnur þorsteinsson hefur notað bókina sem bréfabók 1882-1887. - Klyppsstaður í Loðmundarfirði - Prestþjónustubók 1817-1856
Prestsþjónustubók 1817-1856. Manntal 1816. - Klyppsstaður í Loðmundarfirði - Prestþjónustubók 1817-1858
Prestsþjónustubók 1817-1858. - Klyppsstaður í Loðmundarfirði - Prestþjónustubók 1859-1928
Prestsþjónustubók 1859-1888 og 1922-1928. (Prestsþjónustubók 1889-1921(þ) hefur brunnið, líklega á Dvergasteini 11. 3. 1922, sbr. prestsþjónustubók Dvergasteins 1929-1942, bls. 54). - Dvergasteinn - Prestþjónustubók 1885-1928
Prestsþjónustubók 1885-1928, giftir og dánir. - Dvergasteinn - Prestþjónustubók 1885-1928
Prestsþjónustubók 1885-1928, fæddir og fermdir. - Dvergasteinn - Prestþjónustubók 1929-1942
Prestsþjónustubók 1929-1942. - Dvergasteinn - Prestþjónustubók 1943-1967
Prestsþjónustubók 1943-1967.
Hluti af Klyppsstaðarprestakalli í Loðmundarfirði (–1888).
Hluti af Dvergasteinsprestakalli (1888-1973).
- Klyppsstaður - Sóknarmannatal 1795-1843
Sóknarmannatal 1795-1815, 1829, 1830, 1833, 1835, 1837 og 1840-1843. - Klyppsstaður - Sóknarmannatal 1845-1877
Sóknarmannatal 1845-1877. (Sóknarmannatal 1878-1887 er ekki til. Eftir 1888: sjá Dvergastein BC 3 og áfram, og Desjarmýri BC 8 og áfram vegna Húsavíkursóknar). - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1884-1893
Sóknarmannatal 1884-1893. Einnig Klyppsstaður frá 1888. - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1894-1903
Sóknarmannatal 1894-1903. - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1904-1912
Sóknarmannatal 1904-1912. - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1913-1918
Sóknarmannatal 1913-1918. - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1919-1931
Sóknarmannatal 1919-1931. - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1932-1939
Sóknarmannatal 1932-1939. - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1940-1949
Sóknarmannatal 1940-1949. - Dvergasteinn - Sóknarmannatal 1950-1952
Sóknarmannatal 1950-1952.